Use LEFT and RIGHT arrow keys to navigate between flashcards;
Use UP and DOWN arrow keys to flip the card;
H to show hint;
A reads text to speech;
30 Cards in this Set
- Front
- Back
Strax eða aldrei - Jóhann Sigurjónsson
Ég vildi sem fálkinn um loftgeima líða, mér leiðist sem ormur í duftinu að skríða, ég aldrei í moldinni fullnæging fann. Úr glófögrum marmara vildi ég vinna á vetfangi líkneskju hugmynda minna. Sá skapandi vilji er það vald, sem ég ann. |
Nýrómantík Þrá í eitthvað annað og betra, andstæður og myndmál |
|
Haukurinn - Hulda Gott áttu, hraðfleygi haukur sem hamrana byggir, frelsið er eign þín og arfur frá ómuna tíðum. Himinsins heiðblái faðmur, hafið og fjöllin, allt er þitt víðlenda veldi, voldugi haukur! |
Nýrómantík Öfundar haukinn sem getur flogið frjáls ferða sinna hvert sem er. Er ádeila á stöðu karlmanna í heimi ljóðskálda, þar sem fengu allt upp í hendurnar, en hún var við það að gefast upp. |
|
Mig langar - Jónas Guðlaugsson Þegar morgunsins ljósgeislar ljóma, þegar leiftrar á árroðans bál, heyri eg raddir í eyrum mér óma, koma innst mér frá hjarta og sál: Hér er kalt, hér er erfitt að anda, hér er allt það sem hrærist með bönd! Ó, mig langar til fjarlægra landa, ó, mig langar að árroðans strönd! |
Nýrómantík Þrá eftir einhverju öðru en hann hefur, hann er að gefast upp á að lifa hér, vill fara til einhvers "draumalands" |
|
Einbúinn - Davíð Stefánsson
Ég horfði út í myrkrið og hlustaði á, hvað hríðin söng úti á þaki, og drauga og vofur ég dansa sá með dunandi fótataki. - Þá heyrði ég grátið að húsabaki.
|
Nýrómantík Höfundur er lífsþreyttur, torræður texti, mikið myndmál |
|
Haustið nálgast - Stefán frá Hvítadal Sólin blessuð sígur rauð til viðar, glóa á lofti gullin ský, grátklökk áin niðar.
Haustið nálgast, hríð og vetrarrosinn, senn er ekki sólar von, senn er áin frosin. |
Nýrómantík Bölsýni, sumar og vetur notað til að lýsa tilfinningum, myndmál, magnþrungið, tilfinningar upphafnar |
|
Morgunsöngur - Jóhannes úr Kötlum Nú blakta rauðir fánar í mjúkum morgunblænum og menn af svefni rísa og horfa í austurveg. Það bjarmar yfir tindum, það sindrar yfir sænum, - nú syngjum við um lífið og frelsið – þú og ég. Við fögnum himni bláum, við fögnum skógi grænum, því fagurt er nú loftið og jörðin yndisleg. |
Félagslegt raunsæi Lýsir heiminum eins og hann er, |
|
Stefnuskrá - Sigurður frá Holti Menn yrkja um blóm og bláa himingeima, um bernskudali, - og kynstrin öll af sorg. Og það er tíska að tala um að dreyma, um týndar vonir, ástir, hrunda borg. Menn dást að því, hve dýrðlegt sé að gleyma, en draslast þó með allt sitt skran á torg. Og það er engan endi á því að finna, nær öllu þessu kveini muni linna. |
Félagslegt raunsæi Sigurður gagnrýnir rómantíkína, tilfinningasemina sem fylgdi henni. |
|
Hin hljóðu tár - Steinn Steinarr Ég hef hlustað svo oft á hin hljóðu tár, hin hljóðu tár, sem í myrkrinu falla, svo harmþrungin, vonlaus og veik og þjáð, eins og veiks manns stuna, sem heyrist varla. Gegnum áranna þyt, gegnum aldanna nið, frá upphafi heyrðist sá vonlausi rómur, eins og bölvunar orð yfir breyskum lýð, eins og bannfæring guðs eða skapadómur. |
Félagslegt raunsæi Steinn talar um kreppuna miklu sem hafði svo gríðarleg áhrif á íslendinga, ennþá nokkuð fast form, blákaldur raunveruleikinn, fólkið er mótað af samfélaginu sem það býr í |
|
Vetrardagur - Jón úr Vör Eftir svellaðri vegbrún gengur lágvaxinn maður með lítinn kút sér við hönd. Þeir segja fátt og fara sér hægt niður brekkuna. |
Módernismi Lesandinn þarf sjálfur að gera sér grein fyrir hvað er að gerast og getur í raun túlkað ljóðið á þann hátt sem hann vill. Ljóðið er sett fram á óhefðbundinn hátt |
|
Að sigra heiminn - Steinn Steinarr
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil með spekingslegum svip og taka í nefið. (og allt með glöðu geði er gjarna sett að veði) Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til, því það er nefnilega vitlaust gefið. |
Módernismi Kaldhæðni og háð
|
|
Tíminn og vatnið - Steinn Steinarr Tíminn er eins og vatnið, Og tíminn er eins og mynd, |
Módernismi |
|
Að kvöldi - Snorri Hjartarson
Í morgun þegar sól af fjallsbrún flaug og felldi úr rauðum vængjum gullinn dún á daggarblámans djúpu himinlaug, dvergaskip smá með stöfuð segl við hún, |
Módernismi |
|
Í helli Loka - Hannes Pétursson Hin dökka naðra hátt úr himinrjáfri hangir með opnu gini. Þolinmæði þú sem nú alein eiturdropa bægir frá allri jörð, mun skál þín barmafull? Vá býr í lofti. Naðran sígur neðar. Í nótt verður skál þín full. |
Módernismi |
|
Afríka - Hannes Sigfússon Vopnin plægðu þeim arð af hnotbrúnum akri Afríku: múgar byltust og blóð vætlaði í slóð þeirra
Muldrandi prestar gengu álútir og sáldruðu frómu guðsorði í flakandi sárin |
Módernismi |
|
Rímþjóð - Jóhannes úr Kötlum
Mitt land - það var einbúi í hafi hins svala og blástirnda norðurs: þar svarraði úðahvítt brim við hornbjörg og þrotlausa sanda.
|
Módernismi |
|
Liðsinni - Þorsteinn frá Hamri Blöð og útvarp flytja okkur fregnir af þjóðamorðunum og nú ber öllum skylda til hluttekningar:
svo við rífum úr okkur hjörtun, hengjum þau utan á okkur eins og heiðursmerki og reikum úti góða stund |
Módernismi |
|
Þau hittust í klúbbnum: Birgir Svan Símonarson hann hvíslaði fokheldum ástarorðum í eyra hennar eftir bíó blóm og uppáferðir voru augun þeirra tilbúin undir tréverk |
Nýraunsæi og fyndna kynslóðin |
|
Fugl óttans breytir sífellt um lögun - Nína Björk Fugl óttans er stór hann tekur manneskjuna í klærnar og flýgur með hana langt svo langt frá gleðinni |
Nýraunsæi og fyndna kynslóðin |
|
Núna - Ingibjörg Hansen
Einhverntíma seinna koma þeir eflaust með tækin sín að snuðra í rústunum |
Nýraunsæi og fyndna kynslóðin |
|
Laufhvelið - Sigurður Pálsson
Kvöldið hnýtir sér skúraslæðu
Nóttin leysir hana hnýtir sér skýjaslæðu |
Nýraunsæi og fyndna kynslóðin |
|
Trjágöng um vetur - Sigurður Pálsson
Það snjóar á ljósin í göngunum götuljósin
Trjágöngin enda handan við sjónmál |
Nýraunsæi og fyndna kynslóðin |
|
Ljóðlistin - Sigurður Pálsson
Örninn alltaf i útrymingarhættu
Viðkvæmur svona viðkvæmur þegar upp er staðið |
Nýraunsæi og fyndna kynslóðin |
|
Fuglahótelið fjórum árum síðar - Sjón Þú |
Ungskáldin og póstmódernisminn |
|
Þá Björk - Sjón allt logar og allt deyr perlast í grasinu drukknar í sólinni hunangsgul eyja |
Ungsáldin og póstmódernisminn |
|
Vopnabúrið - Elísabet Jökulsdóttir Einu sinni var kona sem átti vopnabúr og í búrinu voru vopn af öllum gerðum og hún greip til þeirra eftir því sem hún þurfti á að halda. Þarna geymdi hún fyrst og fremst þögnina sem hún steypti eins og ísköldu baði yfir vini sína, illkvittnislegar athugasemdir sem hittu afgreiðslufólk einsog hnífur í hjartað |
Ungskáldin og póstmódernisminnn |
|
Öfund - Didda Öskrandi ungpíur nýbyrjaðar á túr og talandi milli tannanna yfir þrýstnum nýútsprungnum brjóstunum. |
Ungskáldin og póstmódernisminn |
|
Hringrás - Andri Snær
Á meðan sólin snýst í kringum sjálfa sig og jörðin snýst í kringum sólina og tunglið snýst í kringum jörðina mun líf mitt snúast um þig
|
Ungskáldin og póstmódernisminn |
|
Ef - Andri Snær Ef ég ætti 3000 bros myndi ég hnoða úr þeim kúlur og kasta í andlit allra klukkan átta á mánudagsmorgni. |
Ungskáldin og póstmódernisminn |
|
Skilaboð til vegfarenda - Andri Snær Ég veit ekki af hverju ég stöðvaði bílinn og tók upp köttinn sem lá í blóðrauðum polli á malbikinu því ég keyrði ekki á hann en þar sem ég stóð með köttinn í fanginu á miðri götunni og hugsaði hvað ég ætti að gera við hann.. |
Ungskáldin og póstmódernisminn |
|
Um endurhljóðblandanir strumpanna - Steinar Bragi ég spái endurmati á endurhljóðblöndunum strumpanna ég spái sjöþúsundhöfða blómkáli með innbyggðri poppstjörnu steppandi heimspekingum linsum með innbyggðu sjónvarpi sem þarf aldrei að strjúka rykið af |
Ungskáldin og póstmódernisminn |